17. apríl 2007 klukkan 15:48
... nú að sjá hverjir eru tryggir lesendur og hverjir ekki ahahaha..... hvað komið hátt í 5 mánuði frá síðustu færslu... hmmm og gera menn betur segi ég nú bara...
En það er ýmislegt búið að gerast síðan í nóvember... ég fór í próf og rústaði þeim vægast sagt þarna í desember.. þá skellti ég mér í heimsókn til Sjonna bró og Co í dk... keypti allar jólagjafir og tjillaði með litla frænda... svo komu jólin og þau voru ósköp friðsæl og skemmtilleg... Saknaði reynda smá af bræðrum mín og mágkonum.... Bogi og Ólafí og Hjalti, Kata og Inga Bryndis áhváðu að vera í Iowa um jólin svo mar bara hélt góðu símasambandi;).. Svo átti ég bara skemmtilegustu áramót sem ég hef upplifað.... Svaða party á vegum Helgu skvísu og allir komu þangað og fögnuðu 2007.. Svo var haldið í bæinn á skrallið.. og mar kom ekki heim fyrr enupp úr níu;)... Einmitt það kveld hitti ég sannan víking sem er búinn að halda mestri minni athygli (á kostnað skólans;)) síðan þá. Síðan um áramót er ég bara búin að vera gutla í skólanum.. kíkja í vísóferðir, hanga með stelpunum og með honum Sverri. Einnig má taka með í þennan tíðinda bálk að hún Ellý kom alveg kakóbrún frá Ghana, stoppaði í um mánuð og hefur kvatt okkur á ný og haldið til Dk. Einnig... fyrst við eru að tala um tíðindið þá er þetta helst í fréttum: Ég er á HLÖÐUNNI :O
já ég veit... sjokkerandi fréttir það! en það er satt;)... Nú fer að síga í næstu prófa törn og það er ekkert grín skal ég segja ykkur... ég hef ekki hugmynd hvernig ég ætla að fara að þessu öllu saman...
EN að öllu þessu vesenisprófum afloknum þá mun ég halda heldur betur upp á próflok og skella mér með henni Iðunni systur Ólafí til Brussel og heilsa upp á parið almennilega... þar skal verslað einsog brjálæðingar .. kíkja á tjúttið almennilega og líta framan í sólin( um 25 stiga hiti þar núna með glampandi sunshæn).. GET EKKI BEÐIÐ.
En sona þá er ég búin að gera upp það sem búið er að gerast... það sem er að gerast og það sem mun gerast.. ég er alveg hrikalega dulleg;)
en nú skal læra.... auf wieder shen...
spennó að sjá hvort e-r sé enn að kíkja hingað inn... úlala bebe
BÆ, kv. spACE
Ása Bryndís Guðmundsdóttir
16. nóvember 2006 klukkan 20:05
Úff ég eilega skammast mín fyrir að láta sjá mig hérna... maður er ekkert búinn að blogga:S en það er ekki það að maður er ekki inspereraður... það er bara að ég er búin að vera á kafi í skýrslugerðum og öðru álíka skemmtilegu:D
Hvað öðru líður þá nefndi ég það hérna í nokkrum færslum á undan að ég væri til í að skella mér í verslunarferð til Köben. Og viti menn ég lét verða að því. Búin að kaupa miðann og fer út 16. des. og kem heim þann 21.des:D Ég mun taka smá julefrokost og juleshopping og bara jólast almennt með Sjonna bró, Maríu Rán og Guðjóni Teiti litla frænda. Þetta er sko svo innilega minn árstími.. svo don't mess with me;) Svo kem ég heim með allar nýustu jólaskreytinganar frá Köben og kenni ykkur hinum Frónbúum á þetta;)
Það er heldur ekki af verri kanntinum að ég fæ ferðafélaga út til Köben. Það er hún Hildur sem er með mér í Lybbó... Þetta verður heljarinnar för... Vúha.
En nóg um Köben... ég þarf virkilega ða fara detta í lærdóminn á næstunni því annars er ég í vondum málum sko hehe... ég er nebblega búin að stúdera greys anatomy þættina all rækilega hahaha....SJÚkIR þættir.. og þeir sem eru ekki komnir inn í þetta.. þá mæli ég svo innilega með þeim:D
En já... ég ætla að hafa þetta bara stutt og laggott að sinni.. og ég kveð í þetta skiptið og ætla að reyna að einbeita mér að efnfræðinni eða hvað þetta er nú allt saman:P
p.s. Lag vikunnar eða mánaðarinns er Save me með Jem.
No judgement people:)
Ása Bryndís Guðmundsdóttir
25. október 2006 klukkan 04:25
Það væri ekki amalegt að geta gert þetta á dansgólfinu... ég er nokkuð nálægt því... eeennn.. alltaf má gera betur;)
http://youtube.com/watch?v=cPsOmYK-zBYHeitt!!! ekki satt???
Ace, ðe príma tangórína:P
Ása Bryndís Guðmundsdóttir
23. október 2006 klukkan 15:46
.. see my friends.. já ég verð bara afsaka hvað er ótrúlega langt á milli færslna hjá mér....ég hef e-n veginn ekki verið inspereruð upp á síðkasti.... hehe... en nú er von um betri tíð:D
Það sem ég er búin að vera bralla upp á síðkastið er aðalleg e-r próf í skólanum og endalaus skýrsluskil og hópvekefni.. en einsog ég segi þá er von um betri tíð... því ég held að þessi törn sé búin fram að jólum.... og talandi um jólin.. það er alltí einu massivt jólalegt úti.... rosa mikið myrkur.. norðurljós, stjörnubjart og svo kalt og krispí úti. Ég er alveg að hemja mig að draga ekki fram jóla diskana og jólaskapið. Svo er próftaflan komin.. og ég fer í próf þenn 11.13. og 15.... ein vika í helvíti og þá er það bara búið... Löng jól hjá skvísunni spörning hvort mar skelli sér til köbemn í verslunarferð;) hverjir eru með???
Nóg um skólarugl og jólin.... Við Rakel og Helga skelltum okkur á tjúttið í frostinu á laugadaginn... Rosa gaman... fékk smá sammara samt... útaf lærdómnum sem var ekki framkvæmdur á sunnudeginum en what the hell... LIVE A LITTLE.
Svo vil ég óska strákunum á blog.central.is/leikmenn til hamingju... þeir hafa hafið að blogga á ný... og eru þar sannir leikmenn á ferð.... meiri playerarnir;)
Það er búið að vera hörku törn hjá lyfjafræðinni í vísindaferðum.. og mæti ég alltaf... til í tuskið.... en nú er e-r pása þar til 3.nóv.. en mar deyr nú ekki ráðalaus.. því e-ar fregnir hafa verið að því að jóhanna, rakel og kannski jafnvel hún helga hunter og elín ætli að fara á skrallið...
ÉG MÆTI hehe
Að öðru..eru e-r fleirri en ég sem er að lenda í Gallúp sona þrisvar á dag???? ég er ekki að grínast... ég er bara í því að svara spurningum á borð við:
Hefur þú hug á að færa viðskipti þín í annan banka eða sparisjóð á næstunni? NEI
Hefur þú opnað reikning í öðrum banka en þú skiptir mest við!!!!
Ég meina það.... þett er er alveg sægur af spurningum sem ná engri átt og ég vill ekki hafa það..... ég er farin að rukka fyrirsona hluti...... ég er að útbúa rukkunarseðla stílaða á gallup og bankana bara as we speak.... og hyggst ég þá græði alveg óhóflega mikið og ÞÁ kannski skipti ég um banka eðá spariksjóð:P Úff mér bara hitnar í hamsi... boogieboogie.. útá gólf fyirir þá sem vilja dansa

Over and át Ace
P.S. Lag vikunnar er Luktar-Gvendur með henni Björk af Gling-Gló disknum... áhuga samir geta fengið lagið hjá mér;)
Ása Bryndís Guðmundsdóttir
04. október 2006 klukkan 05:21
Ása Bryndís Guðmundsdóttir
29. september 2006 klukkan 01:13
... vísindaferð með meiru í Lyf og heilsu. Ég spá því að það verði svaðalegt skrall hehe

Einnig er smá matarklúbbsgleði á laugardagsmorgun svo helgin er bara vel plönuð og nóg að gera;)
Einsog þið kannski vitið þá er skvísan mætt á bíl og hefur annareins kaggi ekki sést á götum Reykjavíkur og er ég byrjuð að safna dósum og selja klósettpappír til að geta keypt mér krómfelgur... shæní as HELL... jáhh það er satt ég á mér nefnilega Idol í bílamálum... jú nó hú jú are heheh
Allavega... Þess á milli sem ég sem ég geng í hús með klósettpappírinn og býð fólki að losa sig við dósirnar .. þá er ég bara lukkuleg í skólanum og skellti mér í bíó á dögunum með henni Helgu á mynd sem heitir John Tucker must die og held ég að ég muni ekki láta sjá mig í Regboganum á næstunni... Tók nefnilega eitt gott hláturskast og veinaði úr hlátri þó þetta hafi ekkert veri' það ros fyndið... en jú nó mí... svefngalsinn yfirbugar mig:D
Lag vikunnar er eitt gamalt og gott: Lovefool með The Cardigans... Snilld
Þakka áheyrn, Góða nótt
Ása Bryndís Guðmundsdóttir
20. september 2006 klukkan 17:59
jamm... búin að mastera myndasíðuna... kikke po myndirnar af Nýnemdjammi okkar lybbalingar... ég reyndar tók ekki myndirnar sjálf.. heldur rændi þeim frá henni Beggu skvísu... fellow lybbaling

Svo Takk Begga mín

En hvað öðru líður þá er bara allt gott að frétta.. er hérna bara í tíma.. eðlisfræðitíma.. hvorki meira né minna og mér varð hugsað til ykkar.. og ákvað þá að blogga lítið eitt;) Ég gleymdi nebblega brillunum heima og sé því ekki á töfluna... ég gæti bara verið heima hjá mér

Lag vikunnar eða dagsins eða hvað við viljum kalla það er Hate me með Blue October... svaka drama lag en alveg ferlega kúl.
Mynd vikunnar á leigunum er pottþétt runaway jury!!!! Einnig svaðalegt drama og spenna en hei... þetta er bara þema vikunnar.... og þá er því lokið af fyrir næsta árið... hehe
Þangað til næst sykursæturnar mínar
Ása
P.S. heyrði í Ellý í gær... hún er bara í góðum gír og hefur það fínt í Afríkunni... Thank God:D
Ása Bryndís Guðmundsdóttir
15. september 2006 klukkan 04:26
Ása Bryndís Guðmundsdóttir
08. september 2006 klukkan 03:25
.. í heiðar dalinn.... Afsakið hvað það er langt milli færslna... en það er bara búið að vera nóg að gera síðan ég kom heim. Það fyrsta sem við tók var náttúrulega uppáhaldið mitt: stæfr, efnafr, og eðlisfræði. Þetta gerist bara ekki betra;)
En jájá... ég er bara að reyna að koma smá skipulagi á þetta allt saman.. og er enn að ná mér eftir tíma mismuninn... og svo er framisstaðan hans Magna okkar líka svo sannarlega að halda mér vöku langt fram á nótt. VÁ hvað ég er alveg djúpt sokkin í þetta... þessi þáttur náttúrulega bara alger snilld þó að 70 prósent af þessari gamlmenna hljómseit sé með Hepatitis C og þeir eru svolitlir burnouts.. þá er bara ógeðslega gaman að sjá Magna taka öll þessi lög... þjóðarstoltið fer bara stig magnandi en ég vona samt að hann vinni ekki... hann er eilega OF góður fyrir gamlingjana... en Lucas Rossi og Dilana er alveg fullkomin fyrir þá þ.e.a.s. þau eru nógu skítug fyrir þetta band.. en Toby og Magni miklu betri söngvarar. Þá er það komið á hreint;)En eitt sem ég gleymdi að segja ykkur frá Flórída var að annan daginn skellum við okkur í svaðalega flott mall og fyrsta búðin sem ég fer inn í er náttúrulega victoriasseacrets... nema hvað.. ég labba bara beint í flasið á henni Steffí gömlu vinkonu minni úr Ísaksskóla og svo í MR núna á seinni árum... hversu FÁRANLEG tilviljun er það!!! Á morgun er Stúdentadagurinn og við Helga, Rakel, Elín og Jóhanna ætlum sko að tékka á stóra Partytjaldinu fyrir framan HÍ og athuga hvort það sé ekki bara stemmning á mannskapnum... ef ekki þá erum við þekktar fyrir að skapa stemmningu svo þetta verður snilld hvernig sem fer;) Heyríykkur
Ása
Lag vikunnar: I write Sins Not Tragedies með PANIC! At the Disco
Ása Bryndís Guðmundsdóttir
28. ágúst 2006 klukkan 23:39
Já gott fólk ... ég á vona á honum Ernesto í heimsókn á miðvikudaginn... já það er rétt.... the hurricane Ernesto. Þetta er svo týpíst mín heppni.. skelli mér til Flórída akkúrat í hurricane seson og viti menn það er einn hurricane á leiðinni... og hann heitir Ernesto.. talið er að hann komi á land í flórida á miðvikudaginn og það er mælt með því að fólk sé tilbúið!!!!! Hvernig tilbúið spyr ég nú bara???? ég kann ekkert á þetta... ég reikna bara með því að þetta sé allhress Norðan strekkingur
en allaveg annars er allt gott að frétta.. ég er bara að sóla mig og búin að fara í pedicure og svo videre... búin líka að finna drauma kjólinn hehe... get ekki beði að kaupa hann.... og svo náttlega get ég ekki beðið eftir að koma heim og hitta ykkur öll.... það e alveg nauðsynlegt að fara að heiman í smá tíma og fá smá distance frá öllu saman og þá er alltaf svo æðislegt að koma heim í heiðardalinn....
Saknuður og ást
kv. Ernesto
Ása Bryndís Guðmundsdóttir